Sérfræðingur í markaðsmálum og samskiptum
About this role
Reitir óska eftir að ráða til sín sérfræðing á sviði markaðsmála og samskipta. Um er að ræða fjölbreytt starf þar sem viðkomandi mun stýra verkefnum, vinna náið með ólíkum teymum innan félagsins og eiga í samstarfi við ýmsa utanaðkomandi aðila.
Við leitum að einstaklingi með brennandi áhuga á markaðs- og samskiptamálum og getu til að leiða verkefni frá upphafi til enda. Viðkomandi þarf að geta unnið með gögn með markvissum hætti og taka þátt í að útbúa efni fyrir hina ýmsu miðla félagsins.
Starfið tilheyrir skrifstofu forstjóra og býður upp á spennandi tækifæri til að starfa þvert á félagið, læra og þroskast í starfi og hafa áhrif á markaðs- og samskiptaverkefni.
Helstu verkefni
- Verkefnastjórnun fjölbreyttra verkefna á sviði markaðsmála og samskipta
- Framleiðsla efnis og textaskrif
- Umsjón með stafrænum miðlum
- Samskipti við ýmsa verktaka og þjónustuaðila
- Greining, framsetning og utanumhald gagna um samskipti, markaðsmál, samfélagsmiðla, vefmál, auglýsingaherferðir og fleira
Hæfni og menntun
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Starfsreynsla í tengdum verkefnum er kostur
- Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð
- Góð færni í textaskrifum, útbúa efni á íslensku í kynningar, fréttatilkynningar og fleira.
- Góð almenn tæknikunnátta og áhugi á að tileinka sér nýja tækni
- Greining og framsetning gagna og upplýsinga
- Góð færni í mannlegum samskiptum
- Lausnamiðuð hugsun og frumkvæði
- Góð kunnátta í íslensku og ensku
- Áhugi eða reynsla af markaðsmálum og samskiptum
Umsóknarfrestur er til og með 10.júní 2026.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Lára Hilmarsdóttir, samskiptastjóri Reita: lara@reitir.is, s: 825-8422.
Um Reiti
Reitir hf. er íslenskt hlutafélag og hefur verið skráð á Nasdaq Iceland síðan 2015. Starfsemi Reita felst í eignarhaldi, útleigu og umsýslu atvinnuhúsnæðis sem að stærstum hluta er verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Fasteignir félagsins eru í dag rúmlega 150 talsins og safnið er um 490 þúsund fermetrar að stærð. Meðal fasteigna Reita má nefna stærstan hluta verslunarmiðstöðvarinnar Kringlunnar, Spöngina og Holtagarða, Hótel Borg, Hotel Hilton Nordica og Hótel Reykjavík Natura auk skrifstofubygginga við Höfðabakka 9 og að Vínlandsleið. Þar að auki er félagið virkt í fasteignaþróun og fer með þróun og uppbyggingu á yfir 1.000 íbúðum og 130.000 fermetrum af atvinnuhúsnæði. Tekjur félagsins námu 18,2 ma. kr. árið 2025 og fjárfestingareignir þess voru metnar á 252 ma. kr. við árslok.
Frequently Asked Questions
Is the salary disclosed for the Sérfræðingur í markaðsmálum og samskiptum position at reitir?
Where is the Sérfræðingur í markaðsmálum og samskiptum position at reitir located?
Is the Sérfræðingur í markaðsmálum og samskiptum role at reitir full-time or part-time?
Which team or department does the Sérfræðingur í markaðsmálum og samskiptum at reitir belong to?
How do I apply for the Sérfræðingur í markaðsmálum og samskiptum position at reitir?
When was the Sérfræðingur í markaðsmálum og samskiptum job at reitir posted?
You'll be redirected to reitir's official application page on bamboohr.